Phone:
(701)814-6992
Physical address:
6296 Donnelly Plaza
Ratkeville, Bahamas.
Bataakademían (BA) á rætur sínar að rekja til sjálfboðastarfs sem listamaðurinn Tolli Morthens hefur leitt
ásamt félögum sínum í fangelsum landsins síðastliðin 20 ár. Í upphafi var um að ræða starf byggt á 12
spora fræðunum en síðar þróaðist það yfir í að taka með kennslu í núvitundar hugleiðslu og voru til að
mynda þýdd kennslugögn í Núvitund eftir þekkta kennara í þeim fræðum (Paul Gilbert, Choden) sem
sérstaklega var til notkunar í fangelsunum og eru þessi kennslugögn enn í notkun víða
Tolli Mothens hefur lært Núvitund hjá Menningar og Friðarmiðstöðinni, sótt reatreat í Samy Ling klaustrinu í Skotlandi og víðar. Agnar Bragason forstöðumaður Batahúsins hefur einnig lagt stund á og kennt núvitund í fangelsunum um árabil.
Bataakademían hefur staðið fyrir fjölda viðburða innan fangelsana á þessum tíma svo sem AA ráðstefnur, Hugleiðsluhelgar þar sem kennd er og iðkuð hugleiðsla og á seinni árum hefur hefur Bataakademían kennt öndunartækni sem tengingu við hugleiðsluna. Félagar í BA hafa öll sótt námskeið í öndun og jóga bæði hér heima og erlendis hjá kennurum eins og Whim Hof og Dan Brole og hafa síðan kennt þessi fræði innan fangelsana, á meðferðarstofnunum og á sjálfstæðum viðburðum. Þá hefur Háskólinn á Akureyri fengið félaga í Bataakademíunni til að setja upp námskeið í öndun fyrir Símenntun Háskólans á Akureyri.
Meðan á Covid stóð kenndi BA bæði hugleiðslu og öndun til fangelsana tvisvar í viku í gegnum fjarbúnað á meðan faraldrinum stóð. Lengst af heimsótti BA Litla Hraun einu sinni í viku og sinnti um leið starfi að Bitru, Sogni og svo Hólmsheiði eftir að það var opnað. Langflestir af þeim sem eru virkir í starfi BA eru fyrrum fangar sem hafa öðlast getu í gegnum BA og 12 spora samtökin að ná tökum á fíkniójafnvægi sínu og haldið svo áfram að starfa innan fangelsana og með því fólki sem er að koma úr afplánun og styðja það með ráðum og dáðum svo þau nái fótfestu með því að laga sig að samfélaginu og þannig myndað lífræna hringrás milli samfélagsins innan og utan fangelsana.
Rauði þráðurinn í starfi BA er „jafningjanálgun“ sem er byggð á kærleik og virðingu, en það er helst þannig sem hægt er að mynda traust milli einstaklinga í þessum aðstæðum svo árangur náist. Frá árinu 2007 hefur Tolli haldið úti Svitahofi, sem er forn athöfn fengin að láni frá indíánum N-Ameríku, gerð til að hreinsa líkama og sál og er virkjuð með elmentunum vatni, eldi, jörð og vindi. Þessi athöfn hefur reynst félögum í BA og öðrum gífurlega vel til sjálfseflingar og heilunar og hefur um leið mikla félagslega þýðingu fyrir alla þá sem tengjast BA. Nú hefur BA gefið meðferðarstöðinni að Krísuvík eitt svitahofstjald en svettið er þar notað sem hluti af meðferðinni sem þar fer fram. Þá hefur eitt tjald verið sett upp að Sogni en þar koma félagar úr BA og svetta reglulega með heimafólki. Við höfum einnig byggt farandtjald sem við getum ferðast með og heimsækjum fangelsið að Kvíabryggju reglulega og allt er þetta gert í góðu samstarfi við Fangelsismálayfirvöld.
Í gegnum þau ár sem BA hefur starfað hefur safnast mikil reynsla og geta til að grípa fólk sem dvelur í fangelsum og er að fást við fíkniójafnvægi og áfallastreituröskun. Þetta starf hefur meðal annars leitt til þess að Tolli Morthens og Agnar Bragason voru fengnir til að leiða samstarfshóp og svo stýrihóp fyrir þarsíðustu ríkisstjórn til að gera tillögur um úrbætur í fangelsismálum. Í framhaldi af því var Bati Góðgerðarfélag stofnað, en það rekur í dag tvö áfangaheimili fyrir einstaklinga sem eru að koma úr afplánun, annars vegar fyrir karlmenn og hins vegar fyrir konur. Nýverið bættist við íbúðarúrræði fyrir þá sem hafa lokið úrræði í áfangahúsinu og er millistig þar til einstaklingar komast í varanlegt húsnæði.
Í ljósi þeirra miklu breytinga sem eru fyrirhugaðar í fangelsismálum á Íslandi er mikilvægt að virkja
þessa getu og reynslu sem BA býr yfir til að móta og framkvæma “bataúræði” í fangelsunum svo að
árangur náist. Bataakademían er tilbúin að leggja sitt að mörkum og starfa með öllum hlutaðeigandi
aðilum til þess að ná sem bestum árangri við að grípa þá sem lenda í fangelsum.
Sodales Malesuada
Renovation Consultant
Aenean non accumsan ante. Duis et risus accumsan sem tempus porta nec sit amet.
Renovation Consultant
Aenean non accumsan ante. Duis et risus accumsan sem tempus porta nec sit amet.
Renovation Consultant
Aenean non accumsan ante. Duis et risus accumsan sem tempus porta nec sit amet.
F.A.Q.
Phasellus finibus enim nulla, quis ornare odio facilisis eu. Suspendisse ornare ante sit amet arcu semper, vel eleifend tortor egestas.
Volutpat diam ut venenatis tellus in metus vulputate. Turpis egestas sed tempus urna tellus rutrum tellus pellentesque eu tincidunt commodo.
Quam viverra orci sagittis eu volutpat odio facilisis mauris vehicula ipsum a arcu cursus vitae congue mauris faucibus et molestie ac feugiat sed lectus.
Condimentum lacinia quis vel eros. Mi sit amet mauris commodo quis imperdiet massa tincidunt sed risus ultricies tristique nulla aliquet.
Sodales Malesuada Vestibulum